![]() |
![]() |
…
Ráð fyrir kattaeigendur á flugeldastund:
Stutti og fljótlegi listinn
Ásamt lista með hræðslumerkjum
Þó að heimiliskötturinn (Felis silvestris catus) sé rándýr í grunninn, þróaður í náttúrunni til að eltast við smávaxna veiðibráð, þá getur kötturinn sjálfur orðið veiðibráð enda sjálfur frekar smávaxinn, eða orðið fórnarlamb ýmiskonar hættu sem getur leynst í náttúrunni. Kettir eru því að jafnaði varir um sig, og fljótir að láta sig hverfa ef þeir sjá eða heyra eitthvað torkennilegt. Kettir eru eins og flest önnur dýr oft dauðhræddir við þrumur og eldingar. Í gegnum milljónir ára hefur það orðið innbyggð þekking að eldingar geta drepið beint þar sem þær ná til jarðar, og eldingum geta líka fylgt eldar í kjarri eða þurru grasi. Það má vel gera ráð fyrir að flugeldar, með sínum hvellum og drunum ásamt ljósblossum á himni, veki upp genetískt forritaða hræðslu við eldingar.
Ef þú heldur að kisa sé ekki orðinn vön flugeldahljóðum þegar lætin ganga yfir, eða þú hefur ekki náð að gera neitt til að venja hana á hljóðin, þá eru hér leiðbeiningar um hvað er best að gera til að stundin verði bærilegri fyrir kisu á meðan hin hugsanlega „skelfilega“ stund gengur yfir, á meðan við mennirnir skemmtum okkur við að kveikja í skoteldum.
Hvað er gott að gera til að flugeldastundin verði bærileg fyrir ketti
- Haltu kettinum /köttunum innandyra á stað þar sem honum líður vel og hann finnur til öryggis, eins langt frá látunum og hægt er, til dæmis í aflokuðu herbergi. Ágætt er að byrgt sé fyrir glugga svo ekki sjáist út. Sjáðu til þess að gott aðgengi sé að drykkjarvatni og kannski smá mat. Gott er að hafa hluti sem hann þekkir, teppi eða dýnu, á staðnum, sem og klóruprik. Hafðu klósett með kattasandi nærri.
- Ágætt er að útbúa þennan stað með nokkurra daga fyrirvara, svon kötturinn venjist honum.
- Þrátt fyrir að þú hafir útbúið stað fyrir hann að vera á getur verið að hann finni sér sinn eigin stað. Leyfðu honum þá að vera þar.
- Haltu þig nærri ef það er nauðsynlegt. Ekki læsa köttinn inni í herbregi. Það er mjög gott að spila rólega, taktfasta tónlist, það hátt að tónlistin nái að deyfa hljóðin sem berast utan frá.
- Talaðu við köttinn með róandi röddu, leiktu við hann ef það virkar til að róa hann, og ekki sýna að þú sýnir honum vorkunn, talandi slíkri röddu og klappandi með vorkunn í fasi. Sýndu yfirvegun eins og ekkert sérstakt sé að gerast. Kötturinn þinn mun sjá það og taka mark á því. Ekki skamma köttinn fyrir að sýna hræðslumerki, þar sem „hættan“ er raunveruleg í hans huga.
- Sjáðu til þess að kötturinn komist ekki út úr húsi meðan að lætin standa yfir. Haltu honum fjarri opnanlegum gluggum og dyrum. Gott er að kötturinn sé með ól og örmerktur ef ske kynni að hann slyppi út.
- Það gæti verið góð hugmynd að nota CAP ferómón (cat appeasing pheromones) sem gefa kettinum öryggistilfinningu. Spurðu dýralækninn um hvort það væri gott fyrir þinn kött. Dýralæknirinn gæti líka haft skoðun á því hvort róandi lyf séu æskileg, en skiptar skoðanir eru á notkun þeirra.
Þetta eru stuttar leiðbeiningar um hvað er best að gera þegar þessi „skelfilegi“ atburður gengur yfir. Til langs tíma er forvörn best: Að venja köttinn á flugeldahljóð svo að kötturinn verði ekki hræddur við þessi hljóð, enda séu þau orðin hversdagsleg og skaðlaus í hans huga. Vefurinn Flugeldahljod.com býður ókeypis hljóðskrár og leiðbeiningar til að gera það. Ef aðeins örfáir dagar eru til áramóta og ef þú hefur ekki gert neitt af slíku, getur verið að tíminn sé of stuttur til að ná árangri. Þá þarftu að fara eftir ráðunum hér á undan.
Algeng merki um hræðslu hjá köttum:
Hniprar sig saman og titrar
Neitar að láta taka sig upp
Flýr og finnur sér stað að fela sig á
Vill ekki leika eða eiga samskipti
Klórar húsgögn, teppi og fólk
Getur migið þar sem hann á ekki að míga, einnig skitið eða kastað upp
Getur orðið viðskotaillur og árásargjarn gagnvart eiganda og öðrum, oft til að komast í burtu
Stundum hlaupa kettir ærir af hræðslu við flugeldaskothríð út á vegi og hraðbrautir með mikilli bílaumferð, með vondum afleiðingum.
(Þessar ráðleggingar eru byggðar á upplýsingum sem fengnar eru úr fagbókum og af vefsíðum hér og þar.)