deildu-a-facebook-button-half deildu-a-twitter-button-half

flugeldahljod-radleggingar-aramot-blandad

Ráðleggingar fyrir heimili sem eiga gæludýr af blönduðum tegundum.

Efnisyfirlit:

Sameiginlegur stuttur listi fyrir hunda og ketti

Listi með hræðslumerkjum hunda

Listi með hræðslumerkjum katta

Sameiginlegur stuttur listi fyrir fugla og smádýr

Listi með hræðslumerkjum fugla

Listi með hræðslumerkjum smádýra

=====================================

Sameiginlegur stuttur og fljótlegur listi fyrir hunda og ketti

Þó að hundurinn (Canis lupus familiaris) og heimiliskötturinn (Felis silvestris catus) séu rándýr í grunninn, þróuð í náttúrunni til að eltast við veiðibráð, þá getur þau sjálf orðið veiðibráð, eða orðið fórnarlamb ýmiskonar hættu sem getur leynst í náttúrunni. Hundar og kettir eru því langt frá því að vera óttalausar skepnur. Til dæmis eru hundar og kettir eins og önnur dýr oft dauðhræddir við þrumur og eldingar. Í gegnum milljónir ára hefur það orðið innbyggð þekking að eldingar geta drepið beint þar sem þær ná til jarðar, og eldingum geta líka fylgt eldar í kjarri eða þurru grasi. Það má vel gera ráð fyrir að flugeldar, með sínum hvellum og drunum ásamt ljósblossum á himni, veki upp genetískt forritaða hræðslu við eldingar.

Ef þú heldur að hundurinn eða kötturinn séu ekki orðinn vön flugeldahljóðum þegar lætin ganga yfir, eða þú hefur ekki náð að gera neitt til að venja gæludýrið á hljóðin, þá eru hér leiðbeiningar um hvað er best að gera þegar hin hugsanlega „skelfilega“ stund gengur yfir.

Hvað er gott að gera til að flugeldastundin verði bærileg fyrir hunda og ketti
  • Haltu gæludýrinu innandyra á stað þar sem því líður vel og hann finnur til öryggis, eins langt frá látunum og hægt er, til dæmis í aflokuðu herbergi. Ágætt er að byrgt sé fyrir glugga svo ekki sjáist út. Sjáðu til þess að gott aðgengi sé að drykkjarvatni og kannski smá mat. Gott er að hafa nýtt nagbein (í tilviki hunds) og uppáhalds leikfang á staðnum, og teppi eða dýnu sem það þekkir.
  • Ágætt er að útbúa þennan stað með nokkurra daga fyrirvara, svon gæludýrið venjist honum.
  • Þrátt fyrir að þú hafir útbúið stað fyrir það að vera á getur verið að gæludýrið finni sér sinn eigin stað. Leyfðu honum þá að vera þar.
  • Haltu þig nærri ef það er nauðsynlegt. Ekki læsa gæludýrið inni í herbregi. Það er mjög gott að spila rólega, taktfasta tónlist, það hátt að tónlistin nái að deyfa hljóðin sem berast utan frá.
  • Talaðu við gæludýrið með róandi röddu, leiktu við það ef það virkar til að róa það, og ekki sýna að þú sýnir því vorkunn, talandi slíkri röddu og klappandi með vorkunn í fasi. Sýndu yfirvegun eins og ekkert sérstakt sé að gerast. Gæludýrið mun sjá það og taka mark á því. Ekki skamma gæludýrið fyrir að sýna hræðslumerki, þar sem „hættan“ er raunveruleg í þess huga.
  • Sjáðu til þess að hundurinn eða kötturinn komist ekki út úr húsi meðan að lætin standa yfir. Hafðu dyr og glugga lokaða. Ef þú átt stóran hund, haltu honum fjarri stórum gluggum og glerhurðum. Ef þú ferð með gæludýrið utandyra, sjáðu til að það sé tryggilega í taumi, vel merktur og örmerktur.
  • Það gæti verið góð hugmynd að nota DAP ferómón (dog appeasing pheromones) fyrir hunda, eða CAP (cat appeasing pheromone) fyrir ketti, sem gefa gæludýrinu öryggistilfinningu. Spurðu dýralækninn um hvort það væri gott fyrir þitt gæludýr. Dýralæknirinn gæti líka haft skoðun á því hvort róandi lyf séu æskileg, en skiptar skoðanir eru á notkun þeirra.
  • Í tilviki hunds: Taktu hundinn í góða gönguferð og láttu hann gera þarfir sínar fyrir flugeldaatburðinn. Gefðu honum þugna, slæfandi, kvöldmat sem er m.a. með fullt af kolvetnum (til dæmis kartöflum, hrísgrjónum eða pasta. Þannig verður hann þreyttur og dasaður þegar lætin byrja.

Þetta eru stuttar leiðbeiningar um hvað er best að gera þegar þessi „skelfilegi“ atburður gengur yfir. Til langs tíma er forvörn best: Að venja gæludýrið á flugeldahljóð svo að það verði ekki hrætt við þessi hljóð, enda séu þau orðin hversdagsleg og skaðlaus í hans huga. Vefurinn Flugeldahljod.com býður ókeypis hljóðskrár og leiðbeiningar til að gera það. Ef aðeins örfáir dagar eru til áramóta og ef þú hefur ekki gert neitt af slíku, getur verið að tíminn sé of stuttur til að ná árangri. Þá þarftu að fara eftir ráðunum hér á undan.

Algeng merki um hræðslu hjá hundum:

Óvirk viðbrögð

Eyru leggjast aftur

Skottið sett á milli afturfóta

Mikill skjálfti

Ýlfrar og lítill í sér

Slefar mikið

Missir matarlyst

Svarar ekki kalli

 

Virkari viðbrögð

Geltir mikið og gólar

Reynir að flýja hljóðin og ljósin með því að fela sig t.d. undir sófa eða rúmi, inni í fjarlægu herbergi eða skríður inn í skáp

Reynir að komast út til að flýja

Mígur eða skítur þar sem hann er staddur

Tryllist. Veður um og krafsar, bítur og nagar húsgögn og húsmuni

Sker sig, særir fótaþófa og munn, brýtur eigin tennur

Það hefur gerst erlendis að stórir hundar, trylltir af hræðslu, stökkva út í gegnum stóra glerrúðu sem þeir mölbrjóta og særa sjálfa sig um leið sem róar þá ekki niður.

Stundum hlaupa hundar ærir af hræðslu út á vegi og hraðbrautir með mikilli bílaumferð, með vondum afleiðingum.

Hundar hafa tínst og ekki fundist aftur, en það á við um stóru löndin.

 

Algeng merki um hræðslu hjá köttum:

Hniprar sig saman og titrar

Neitar að láta taka sig upp

Flýr og finnur sér stað að fela sig á

Vill ekki leika eða eiga samskipti

Klórar húsgögn, teppi og fólk

Getur migið þar sem hann á ekki að míga, einnig skitið eða kastað upp

Getur orðið viðskotaillur og árásargjarn gagnvart eiganda og öðrum, oft til að komast í burtu

Stundum hlaupa kettir ærir af hræðslu við flugeldaskothríð út á vegi og hraðbrautir með mikilli bílaumferð, með vondum afleiðingum.

 

====================

Sameiginlegur stuttur og fljótlegur listi fyrir fugla og smádýr

Litlu gæludýrin eins og búrfuglar og smádýr, eins og kanínur, naggrísir, hamstrar, degu og gerbil, hafa ekki gaman af óútskýrðum og skyndilegum hvellum sem fylgja flugeldum. Þessi dýr eru veiðibráð í náttúrunni, og eru forrituð til að bregðast við öllum óvenjulegu og óþægilegu áreiti með því að hræðast og flýja.

Ef þú heldur að gæludýrin séu ekki orðinn vön flugeldahljóðum þegar lætin ganga yfir, eða þú hefur ekki náð að gera neitt til að venja þau á hljóðin, þá eru hér leiðbeiningar um hvað er best að gera til þegar hin hugsanlega „skelfilega“ stund gengur yfir.

Hvað er gott að gera til að flugeldastundin verði bærileg fyrir búrfugla og smádýr
  • Ef búrið er á stað þar sem sést út er ráðlegt að annað hvort byrgja glugga þannig að ekki sjáist út, og loka gluggum þannig að hljóð utan frá berist síður inn, eða að flytja búrið inn í herbergi þar sem ekki sést út, og hljóðin utan frá berast síður til eyrna.
  • Það er mjög gott að spila rólega, taktfasta tónlist, það hátt að tónlistin nái að deyfa hljóðin sem berast utan frá.
  • Ef þú velur að færa búrið er ágætt að gera það með nokkurra daga fyrirvara svo gæludýrið venjist nýja staðnum.
  • Sjáðu til þess að gott aðgengi sé að drykkjarvatni og kannski smá mat.
  • Sjáðu til þess að gæludýrið geti ekki flúið. Hafðu búrið lokað, og alla glugga og dyr út lokaðar.
  • Hafðu ljósin kveikt svo gæludýrið sjái umhverfið, eða hafðu skuggsýnt. Veldu það sem þú telur best.
  • Vertu til staðar ef þörf er á. Talaðu með róandi röddu. Ekki sýna vorkun í tali eða fasi. Sýndu yfirvegun eins og ekkert sérstakt sé að gerast. Gæludýrið mun líklega sjá það og taka mark á því.

Þetta eru stuttar leiðbeiningar um hvað er best að gera þegar þessi „skelfilegi“ atburður gengur yfir. Til langs tíma er forvörn best: Að venja gæludýrið á flugeldahljóð svo að þau verði ekki hrædd við þessi hljóð, enda séu þau orðin hversdagsleg og skaðlaus í þeirra huga. Vefurinn Flugeldahljod.com býður ókeypis hljóðskrár og leiðbeiningar til að gera það. Ef aðeins örfáir dagar eru til áramóta og ef þú hefur ekki gert neitt af slíku, getur verið að tíminn sé of stuttur til að ná árangri. Þá þarftu að fara eftir ráðunum hér á undan.

Algeng merki um hræðslu hjá fuglum:

Merkin um hræðslu eru þau að þeir hnipra sig í skjól þar sem það er að finna, eða hnipra sig á prikinu ef skjól er ekkert.

Fiðrið leggst að líkamanum og þeir verða mjög grannir á að líta.

Þeir geta verið ýmist einkennilega þögulir, eða skríkt eins og í mótmælaskyni á móti hvellunum.

Forðast tengsl við fólk, þó fuglinn hafi áður haft ánægju af tengslum.

Bítur og er ógnandi.

Reitir af sér fjaðrir.

Algeng merki um hræðslu hjá smádýrum:

Hræðsluviðbrögð hjá kanínum, hömstrum og naggrísum felast gjarnan í því að þau “frjósa” á staðnum.

Þau koma sér í skjól þar sem þau hafa mjög hægt um sig.

Þau geta titrað mjög, og farið að búa sér til skjól í heyi á mjög stressaðan hátt.

Leggja eyrun aftur.

Gnísta tönnum, eða það glamrar í tönnum.

Stappa niður afturfæti.

Þau tísta og „tala“ á stressaðan hátt.

 

(Þessar ráðleggingar eru byggðar á upplýsingum sem fengnar eru úr fagbókum og af vefsíðum hér og þar.)

 

Ef þú hefur hræðslumerki sem þú getur lýst og bætt við þennan lista, geturðu sent lýsinguna á postur@flugeldahljod.com

 

Þekkirðu gæludýraeigendur með aðra gerð af gæludýrum eða hestum? Segðu þeim frá ráðleggingum fyrir þeirra tegund:


show ip address