Ef ekki hefur tekist að venja köttinn alveg á flugeldahljóð í tæka tíð fyrir áramótin, eru hér viðurkennd ráð til að hjálpa kettinum að komast gegnum áramóta”brjálæðið”.
Lagalegur fyrirvari: Ekki eru gefnar neinar tryggingar fyrir því að þitt gæludýr muni komast klakklaust gegnum flugeldatímann þó að þessum ráðum sé beitt, sem eru svipuð þeim sem má finna á mörgum stöðum á vefnum. Framkvæmd þessara ráða er alfarið á ábyrgð eiganda. Ýmis hliðarskilyrði geta haft áhrif á árangur, varðandi gæludýrið, eigandann og aðstæður allar, sem gera að ekki er hægt að gefa tryggingu á árangri. Sjá líka lagalegan fyrirvara neðst á síðunum með lausnunum og leiðbeiningunum.