Velkomin/n!

kottur-bara-blurundirKettir geta verið mjög hræddir og liðið illa vegna flugeldahljóða kringum áramót, stundum með slæmum afleiðingum. Það er hægt að minnka verulega eða eyða þessu vandamáli hjá mörgum köttum, með því að venja þá á hljóðin. Þá eru hljóðin hversdagsleg og valda ekki skelfingu.

Að venja gæludýr við þessi hljóð getur tekið tíma (einstaklingsbundið milli dýra) og því er best að byrja strax!

Bein leið! Nú þarf ekki að skrá sig á póstlista.

Með því að nota lausnina hér á Flugeldahljóð.com samþykkir þú eftirfarandi skilmála (sjá neðst á síðunni):

Forupplýsingar og tvö myndskeið

Hér undir eru myndskeið og upplýsingar sem skýra hræðslu við hljóð, og aðferðir til að vinna á eða fyrirbyggja vandann.

Myndskeið:

Af hverju hræðsla við hljóð?

Ráð gegn óþarfa hræðslu við hljóð hjá gæludýrum

Ertu á tölvupóstlistanum?

Að skrá sig á tölvupóstlistann er ekki lengur skilyrði fyrir að nota Flugeldahljod.com, en það væri gott að þú skráðir þig inn. Þá getur þú fengið senda tölvupósta með gagnlegum upplýsingum, tilkynningum til að minna þig á tímasetningar, og til að þú getir gefið svör eftirá um notkun þína á lausninni.

Smelltu hér til að skrá þig inn á tölvupóstlistann

Smella hér.

Ókeypis aðgangur að þróuðum lausnum fyrir ketti

Til þess að venja köttinn á flugeldahljóð, og önnur hljóð, verður að beita réttum aðferðum. Þessar aðferðir nefnast desensitization og habituation á ensku hjá fagfólki. Hér á þessari síðu færðu aðgang að hljóðum til að spila, sem eru niðurhalanlegar MP3 skrár, og réttum leiðbeiningum. Þetta er án endurgjalds, en verðmæti er annars um 1500-2000 krónur. Ef þú þarft CD disk eru leiðbeiningar um það þegar inn er komið. Þessi síða tengist vöruþróun þar sem nýjar lausnir eru þróaðar. Með því má átta sig á hvernig gekk, til að bæta aðferðina fyrir aðra gæludýraeigendur, og önnur gæludýr.

Hvaða hluti katta á í erfiðleikum með flugeldahljóð og önnur hljóð?

Kettir eru að upplagi rándýr eins og hundar. Ekki eru aðgengilegar miklar upplýsingar um hve langan tíma það tekur ketti að venjast svona hljóðum. Það er aðeins til ein önnur svona vara fyrir ketti (seld m.a. á Amazon).  Það er ekki ólíklegt að mynstrið hjá köttum sé svipað og hjá hundum, en það er misjafnt hve langan tíma tekur að venja hunda á hljóð sem geta annars valdið vandræðum. Það er einstaklingsbundið. Um 20% hunda munu eiga verulega erfitt vegna hljóða sem þeir hræðast, um æfina, ef ekkert er að gert. Ákveðin hundakyn eru svo enn viðkvæmari. Með því að nota þessa aðferð og gefa upplýsingar fyrir fram og eftir á getur þú hjálpað við að safna upplýsingum um ketti.

Mun þetta hjálpa þínum ketti?

Það er nokkuð ljóst að þessar aðferðir hér á flugeldahljod.com munu hjálpa mörgum köttum að verulegu leiti. Hvort að þinn köttur, sem lest þetta, muni fá fulla lausn er erfiðara að segja, enda eru kettir líklega misjafnlega viðkvæmir. Ég get aðeins gefið almennar upplýsingar. En það er mjög þess virði að reyna. Segjum að það sé mjög líklegt að þinn köttur muni hafa betri stöðu eftir svona aðferð.

Af hverju allar tegundir gæludýra?

af-hverju-allar-tegundir

 

manifesto-islenska

Lagaleg skilyrði (disclaimer) varðandi öryggi og árangur

Með því að hlaða niður og nota hljóðskrárnar og leiðbeiningarnar samþykkir þú þessi skilyrði, og staðfestir að þú hefur kynnt þér vel efni þessara vefsíðna og ferð vandlega eftir leiðbeiningunum. Flugeldahljod.com getur ekki ábyrgst árangur af þessari aðferð. Flugeldahljod.com geta aðeins lofað að hafa lagt mikla vinnu í að gera þessar lausnir og leiðbeiningar vel úr garði, og að ef að hópur gæludýraeigenda nota þessar aðferðir þá á ástandið á gæludýrunum, heilt yfir séð, að verða mun betra í þessu tilliti en annars hefði verið. Hér er boðið upp á sérstaklega samsettar hljóðskrár og leiðbeiningar, en þar fyrir utan eru fjórir megin þættir sem Flugeldahljod.com getur ekki haft áhrif á:

  1. Gæludýr eru mismunandi að upplagi. Sum verða ekki hrædd við hljóð, önnur mjög hrædd. Sum ná frekar fljótt að venjast hljóðum, önnur taka lengri tíma, og örfá glíma við önnur heilsufarsleg, taugaleg, erfðafræðileg mál sem blandast í málið og gera að verkum að ekki er hægt að vinna með dýrið nema með aðkomu dýralæknis.
  2. Aðstæður eru mismunandi, og hljómtæki sem fólk á eru mismunandi.
  3. Eigendur eru mismunandi, með mismunandi nálgun að svona aðferð, og hafa mis mikinn tíma, en þessi aðferð krefst nokkurrar nákvæmni, sérstaklega klassíska aðferðin, en nýja aðferðin ætti að vera auðveldari og öruggari.
  4. Stundum koma upp óvænt tilvik sem enginn gat séð fyrir, en hafa áhrif á framvinduna.

Flugeldahljod.com getur ekki haft nein áhrif á þessa þætti. Lausnin á Flugeldahljod.com er © copyright 2015 allur réttur áskilinn, og er aðeins til einkanota. Notandi verður að sækja lausnina hingað og taka þátt í spurningakönnun, og má ekki áframselja lausnina.


show ip address