Settu þessa síðu í bookmarks/favorites. Geymdu líka tölvupóstinn með slóðinni á síðuna.

Viltu hjálpa öðrum gæludýra- og hestaeigendum, og segja þeim frá þessari síðu? Póstaðu á Facebook, tístu á Twitter, sendu tölvupóst eða SMS með þessum slóðum

http://topf.cc/fh eða www.flugeldahljod.com
deildu-a-facebook-button-half-pngtranspar deildu-a-twitter-button-half-pngtranspar

 

Ertu á tölvupóstlistanum?

Að skrá sig á tölvupóstlistann er ekki lengur skilyrði fyrir að nota Flugeldahljod.com, en það væri gott að þú skráðir þig inn. Þá getur þú fengið senda tölvupósta með gagnlegum upplýsingum, tilkynningum til að minna þig á tímasetningar, og til að þú getir gefið svör eftirá um notkun þína á lausninni.

Smelltu hér til að skrá þig inn á tölvupóstlistann

Smella hér.


horse-bara-blurundir

Hér hleður þú niður NÝJU lausninni fyrir hesta (bætt hefur verið við hljóðum fyrir hesta).

Leiðbeiningar fyrir nýju lausnina eru undir.

Með því að nota þessa lausn samþykkir þú eftirfarandi skilmála (sjá neðst á síðunni):

Ný lausn – mappa zip pökkuð – í henni fimm möppur með MP3 skrám (stærð 360 mb)

hlada-nidur-zip-skjali-button-green-2-pngtranspar

Hægrismelltu til að hlaða niður og vista á tölvunni.
Afpakkaðu skránni með Zip forriti eða t.d. hægri smella
á skjalið í tölvunni og velja “Extract all” á listanum.

Með því að hlaða niður skránum samþykkir þú skilyrði (disclaimer) varðandi öryggi og árangur sem má sjá neðst á síðunni.

Bætt var við nýjum hljóðum fyrir hesta í þessum skrám. Hér er listi yfir hljóðin í skránum:

01-piano – stilling á tónhæð

01-flugeldar-eftir-midnaetti-rolegra.mp3

02-flugeldar-midnaetti-mikid.mp3

03-umferd.mp3

04-bilflautur.mp3

05-blaktandi-fanar.mp3

05-motorhjol-1.mp3

07-flugeldasyning-auka-hljodeffektar.mp3

08-logreglusirenur.mp3

09-motorhjol-2.mp3

10-motorhjol-3.mp3

11-hundar.mp3

12-flugeldasyning.mp3

audio-cd-w100px

Notar þú CD diskspilara? Skoðaðu neðar á síðunni (smella).

Sýnilegi hluti flugelda: Sjá líka neðar á síðunni.

soundcloud-logo-128x128

Ertu með nettengt tæki?

Þú getur streymt hljóðunum beint af streymisveitunni Sound Cloud (smella).

(Nýju hljóðin eru ekki á Soundcloud.)

Leiðbeiningar fyrir nýju lausnina

Í örstuttu máli:

Spila á hljóðin daglega. Byrja skal á pakka 1 þar sem hljóðin eru fyrirfram stillt mjög lágt. Píanótónlist í upphafi er stillt í þægilega hljóðhæð, sömu hljóðhæð í öllum pökkunum. Fara skal eftir nokkra daga í pakka 2, svo 3, 4 og 5, eins hratt og hesturinn/hestarnirhefur vanist hljóðhæðinni, og það sést að hann er rólegur yfir hljóðuðum í þeim pakka. Ef hljóðið er aðeins of hátt í nýjum pakka má lækka aðeins og hækka svo síðar. Í pakka 5 eru hljóðin spiluð á náttúrulegumstyrk, eins og sjálfur atburðurinn væri í gangi. Spila skal á mismunandi stöðum, á mismunandi tímum. Eigandinn á ekki að sýna nein viðbrögð, og það á að virðast eins og hljóðin komi fyrir tilviljun án þess að eigandinn hafi áhrif á.Rétt er að hafa sérstakan viðbúnað um sjálf áramótin þó búið sé að fara gegnum þessi skref.

Byrja lágt, hækka smám saman

Vandinn við flugeldahljóð er m.a. að þau eru óþekkt, koma skyndilega og með miklum hávaða. Ef gæludýraeigandi spilar slík hljóð fyrir gæludýrið á fullum styrk, er gæludýrið í sömu stöðu og í “náttúrulegu” stöðunni, þ.e. hljóðin eru mjög hávær og gæludýrið getur fengið áfall og fyllst hræðslu.

Lausnin á því er að byrja að spila hljóðin mjög lágt og hækka svo smám saman, eins og gæludýrið þolir. Að lokum þekkir það hljóðið á fullum styrk og kippir sér ekki upp við það. Þessi aðferð kallast desensitization þegar unnið er með vandamál, eða habituation þegar verið er að fyrirbyggja vandamál.

Flugeldahljóðskrárnar eru stilltar af í mismunandi hljóðhæð í skrefunum fimm, frá mjög lágu til fulls styrks. Þannig er mun þægilegra að finna ávallt réttu hljóðhæðina á mismunandi stöðum og jafnvel í mismunandi hljómtækjum, þegar þú ert mismunandi langt komin/n í ferlinu. Þetta er ástæðan fyrir fimm skrefum í stað eins setts af flugeldahljóðskrám í klassísku lausninni. Tilgangurinn hér er skýr: Að gera hlutina rétt, að forðast mistök, og komast alla leið meðferðina á enda. Tilgangurinn er ekki að búa til einfaldara form, (app í farsíma eða spjaldtölvu getur ekki eitt og sér leyst þetta verkefni, enda fer afgreiðsla hljóðanna fram í hátölurum og magnara, stundum græjur í stofu, stundum ferðatæki, stundum bíltæki, sem geta verið stillt mismunandi hátt frá degi til dags, oft án þess að það sé neinn kvarði á tækinu til að fylgjast með).

Hér eru skrefin. Kynntu þér vel þessi skref og farðu eftir þeim, þá er hámarks líkur á góðum árangri 🙂

  1. Hljóðin á að spila daglega þar til hesturinn/hestarnirhefur vanist hljóðunum, og hræðist þá ekki hin raunverulegu hljóð, eða hræðist þau minna.* Lykil atriði sem verður að fylgja er að byrja á spilunina mjög lágt, og hækka svo hjóðhæðina í litlum skrefum eftir því sem hesturinn þolir, þar til þau hafa náð fullum styrk. Ekki freistast til að byrja á að spila hljóðin af fullum styrk í upphafi, “til að prófa, bara smá, til að sjá hvort hesturinn bregðist við”. Þetta getur leitt til áfalls fyrir dýrið, enda eru hestar sérlega fælnar skepnur sem veiðibráð (prey animal) í náttúrunni. Hljómtæki sem eru notuð eiga, undir lok ferlisins, að skila hljóðunum sæmilega raunveralega í styrk og hljómgæðum. Fjórar mismunandi flugeldahljóðskrár fylgja þessari lausn og á að spila þær sitt á hvað fyrir fjölbreytni (lengd frá rúmum fimm til rúmlega átta mínútur), á mismunandi stöðum og jafnvel tímum.
  2. Byrjaðu hljóðskránum í skrefi nr. 1. Fyrsta skráin í öllum skrefum er þægileg píanótónlist, alltaf í sömu hljóðhæð. Stilltu hljóðhæðina þannig að píanóið sé á venjulegri hljóðhæð til að hlusta. Ef hljómtækið er með kvarða, eða þú getur munað hljóðhæðina, skrifað hana niður, merkt hana, gerðu það þá. Hljóðhæðin á tækinu verður að mestu sú sama gegnum allan ferilinn. Haltu hljóðhæðinni og hækkaðu hana ekki. Hljóðið er stillt u.þ.b. rétt fyrir þetta skref. Til að hækka hljóðið færirðu þig í næsta skref fyrir ofan. Þú getur hins vegar lækkað örlítið ef þörf er á (sjá lið nr. 7).
  3. Þegar þú ert búinn að stilla hljóðhæðina getur þú smellt á “áfram” takkann, [>>]. Hljómtækið fer að spila næstu hljóðskrána sem er flugeldahljóð. Þú getur líka valið aðra hljóðskrá þar sem þær eru fjórar.
  4. Skoðaðu viðbrögðin:
  5. Afslappaður: Ef hesturinn þinn er alveg afslappaður, skiptu þá yfir í skref nr. 2 daginn eftir.
  6. Örlítið órólegur: Ef hesturinn sýnir smá óróleika, þá ertu á góðum stað, alveg við mörkin að “pirrings” svæði hans. Haltu áfram nokkra daga þar til hesturinn er orðinn rólegur og hefur vanist hljóðunum. Skiptu þá yfir hljóðskrárnar í skrefi nr. 2 daginn eftir, og haltu þessu áfram koll af kolli. Í skrefi 3, 4 og loks 5.
  7. Ef hesturinn er of órólegur þegar þú hefur skipt upp í næsta pakka fyrir ofan, (þetta eru fimm skref sem er dálítið bratt), getur þú lækkað aðeins hljóðið. Sjá frekari upplýsingar hér undir.
  8. Mjög órólegur: Ef hesturinn er mjög órólegur, hættu þá. Lækkaðu hljóðið daginn eftir og haltu áfram. Ef hesturinn róast alls ekki og er mjög æstur og þjáður, talaðu þá við dýralækni. Það geta verið önnur heilsufarsleg vandamál fyrir hendi, sem þessi meðferð lagar ekki.
  9. Svona hækkar þú hljóðstyrkinn smám saman. Gerðu þetta eins hratt og mögulegt er, ekki dvelja við óbreytta hljóðhæð. Það er misjafnt hve langan tíma þetta tekur. Hestar eru þó að jafnaði fljótari að venjast hljóðum en hundar eru, og fyrir hest sem verið er að venja reglulega á hitt og þetta (“desensitize”), gæti þetta tekið niður í 1-2 daga. En það er engin regla. Í hópi hesta þarftu að fylgja þeim sem er hægastur. Ef nýr hestur kemur inn á áhrifasvæði þessara hljóða þarf að lækka hljóðið aftur og taka tillit til hans. Það er nauðsynlegt að spila hljóðin á öllum stöðum þar sem hesturinn dvelur, inni í húsi og utandyra, í kerrunni, eða alla vega öllum stöðum þar sem búast má við að hann heyri flugeldarhljóð. Annars getur hann vanist hljóðum á einum stað, en verið jafn hræddur við þau á öðrum stað, (e. locational tolerance). Hesturinn má ekki átta sig á að þú setjir hljóðin af stað. Þau eiga að koma “fyrir tilviljun”. Ekki rjúfa hljóðin skyndilega, og alls ekki þannig að hesturinn átti sig að þú sért að því. Passaðu upp á að önnur áreiti séu ekki í gangi sem trufla. Láttu alla vita hvað er að gerast, svo allir séu sáttir. Svona hljóð eru ekki alltaf skemmtileg, en þetta eru bara 5-9 mínútur í einu.
  10. Til að fylgjast með hestinum er gott að skilja vel hræðslumerki. Smelltu hér til að sjá lista yfir hræðslumerki hesta.Sýndu sjálf/ur engin viðbrögð, eins og hljóðin skipti alls engu máli, og ekki bregðast við með vorkunn eða hughreystandi viðbrögðum ef hesturinn er órólegur. Með því sýnir þú að hljóðin skipta engu máli, enda eru hljóðin ekki hættuleg, og hesturinn áttar sig á því að lokum. Ef þú kjassar hestinn og talar í vorkunnartón þegar hann sýnir óöryggi heldur hann að það sé raunveruleg ástæða til að vera hræddur. Hvað hunda varðar, t.d. hafa sumir hundaeigendur  spanað upp enn meiri  hræðslu í hundinum sínum með slíku, og það getur hugsanlega átt við um hesta líka. Í staðinn áttu að lækka hljóðið og halda svo áfram frá þeim punkti. Passaðu upp á staðsetningu þína. Ef hesturinn fælist, stekkur til eða tekur á rás, vertu viss um að hesturinn stefni ekki á þig.
  11. Þegar þú spilar hljóðin á hljóðstyrk sem er eins og raunverulega sé verið að skjóta upp flugeldum, og hesturinn er orðinn vanur og rólegur yfir hljóðunum, enda hefur þol hans verið byggt upp “mjúklega”, stig af stigi, má telja að hesturinn sé útskrifaður! Til hamingju!
  12. Þó er ekki hægt að tryggja að hesturinn sé alveg sáttur þegar raunverulegum flugeldum, skotkökum og slíku er skotið upp. Heyrn hesta er ögn næmari en okkar, og hávaðasamir hvellir geta verið mjög óþægilegir, plús lykt af brennandi púðri, og svo sýnilegi hluti flugeldanna (sjá undir). Ef þú ert ekki örugg/ur um að búið sé að venja hestinn á hljóðin, hesturinn er órólegur, hafðu hann þá inni yfir áramótin og búðu um hann eins og mælt er með (sjá leiðbeiningar hér). Raunar skaltu hafa þessi ráð til reiðu, hvort sem þú telur hestinn tilbúinn eða ekki. Síðari tíma viðhald: Hestar geta “af-vanist” hljóðunum. Því er nauðsynlegt að viðhalda þessu með því að spila hljóðin aftur, til dæmis nokkrum vikum fyrir flugeldatíma.
  13. Það segir ekkert um “gæði” hestsins hve langan tíma þetta tekur, sem er mjög mismunandi (og margir eru ekki viðkvæmir fyrir þessu yfirleitt). Þetta er eins og að vera nærsýnn eða fjarsýnn, þú dæmir ekki manneskjuna eftir því. Það er því þarflaust að bera saman hesta og láta eins og einn sé betri en hinn.

Notar þú CD diskspilara?

audio-cd-w100px

 

Ef þú vilt spila af CD diskum, eru tvær leiðir:

1  Þú getur brennt eigin CD diska, notandi fimm tóma CD-R diska og MP3 skrárnar á þessari síðu. Fyrir fimm pakka, píanótónlist plús fjórar hljóðskrár þarftu fimm diska.

2   Þú getur ekki keypt nýju lausnina á CD ennþá á Amazon eða á öðrum vinsælum vefverslunum. Þú getur raunar ekki fengið hana á MP3 heldur. Þetta er nýjung sem er að koma fram og er rétt við það að fara á markað (með fleiri tegundum hljóða en flugelda).

syniliegi-hluti-flugelda-mynd

Sýnilegi hluti flugeldanna. Geturðu þjálfað þann þátt?

Ef þú átt skjávarpa til að varpa á vegg í myrku hesthúsinu, eða utandyra í myrkri, geturðu spilað video, þar sem hesturinner tiltölulega nálægt. Þú ferð svipaðað og með hljóðin, þ.e. lætur myndina vera nokkuð langt frá í upphafi, og færir hestinn svo nær (eða myndina nær), þar til lætin á skjánum eru orðin þokkalega stór hluti sjónsviðsins. Það er hugsanlegt að hesturinn læri á sjónræna þáttinn líka. En þó ekki sé hægt að tryggja neitt, sakar ekki að reyna ef þú vilt það.Flugeldahljod.com hefur sérstakan áhuga á að heyra af árangri af svona tilraun.

Smelltu hér til að sjá myndskeið frá áramótum, á Youtube.

Smelltu hér til að sjá myndskeið frá flugeldasýningu, á Youtube.

Hljóðrásin er góð í þessu myndskeiði. Smelltu á ferninginn niðri til hægri við skjáinn á Youtube, þá færðu allan skjáinn (full screen). Þú getur hlaðið niður myndskeiðinu með til þess gerðri þjónustu, til dæmis þessari.

Lagaleg skilyrði (disclaimer) varðandi öryggi og árangur

Með því að hlaða niður og nota hljóðskrárnar og leiðbeiningarnar samþykkir þú þessi skilyrði, og staðfestir að þú hefur kynnt þér vel efni þessara vefsíðna og ferð vandlega eftir leiðbeiningunum. Flugeldahljod.com (TopFauna LLC) getur ekki ábyrgst árangur af þessari aðferð. Flugeldahljod.com (TopFauna LLC) getaaðeinslofað að hafa lagt mikla vinnu í að gera þessar lausnir og leiðbeiningar vel úr garði, og að ef að hópur gæludýra- og hestaeigenda nota þessar aðferðir þá á ástandið á gæludýrunum/hestunum, heilt yfir séð, að verða mun betra í þessu tilliti en annars hefði verið.Hér er boðið upp á sérstaklega samsettar hljóðskrár og leiðbeiningar, en þar fyrir utan eru fjórir megin þættir sem Flugeldahljod.com getur ekki haft áhrif á:

  1. * Gæludýr og hestar eru mismunandi að upplagi. Sum verða ekki hrædd við hljóð, önnur mjög hrædd. Sum ná frekar fljótt að venjast hljóðum, önnur taka lengri tíma, og örfá glíma við önnur heilsufarsleg, taugaleg, erfðafræðileg mál sem blandast í málið og gera að verkum að ekki er hægt að vinna með dýrið nema með aðkomu dýralæknis.
  2. Aðstæður eru mismunandi, og hljómtæki sem fólk á eru mismunandi.
  3. Eigendur eru mismunandi, með mismunandi nálgun að svona aðferð, og hafa mis mikinn tíma, en þessi aðferð krefst nokkurrar nákvæmni, sérstaklega klassíska aðferðin, en nýja aðferðin ætti að vera auðveldari og öruggari.
  4. Stundum koma upp óvænt tilvik sem enginn gat séð fyrir, en hafa áhrif á framvinduna.

Flugeldahljod.com getur ekki haft nein áhrif á þessa þætti. Lausnin á Flugeldahljod.com er © copyright 2015 allur réttur áskilinn, og er aðeins til einkanota. Notandi verður að sækja lausnina hingað og taka þátt í spurningakönnun, og má ekki áframselja lausnina.

= = = = =

Er bilið frá einum pakka til þess næsta í hljóðhæð of mikið? Þá má lækka aðeins hljóðhæðina í tækinu þannig að hljóðhæðin sé mitt á milli nýja og fyrri pakkans. Hér eru leiðbeiningar um hve mikið á að lækka. Í pakka nr. 1, til að lækka hljóðstyrk um helming niður að 0: Lækka um helming. Nýkominn í pakka nr. 2, til að lækka helming að hljóðstyrk í pakka nr. 1: Lækkaðu hljóðið um fjórðung. Nýkominn í pakka nr .3, til að lækka helming aðhljóðstyrk í pakka nr. 2: Lækkaðu um 1/6.Nýkominn í pakka nr .4, til að lækka helming aðhljóðstyrk í pakka nr. 3: Lækkaðu um 1/8. Nýkominn í pakka nr .5, til að lækka helming aðhljóðstyrk í pakka nr. 4: Lækkaðu um 1/10. Ef þú lækkar meira en þetta ertu búinn að lækka nokkurn veginn alveg niður að pakkanum fyrir neðan, svo það er enginn munur á fyrri pakka og nýja pakkanum.


show ip address