Settu þessa síðu í bookmarks/favorites. Geymdu líka tölvupóstinn með slóðinni á síðuna.
Viltu hjálpa öðrum gæludýra- og hestaeigendum, og segja þeim frá þessari síðu? Póstaðu á Facebook, tístu á Twitter, sendu tölvupóst eða SMS með þessum slóðum
http://topf.cc/fh eða www.flugeldahljod.com
![]() |
![]() |
Vinsamlega ekki senda fólk beint á þessa síðu, þar sem nauðsynlegt er að fá það á tölvupóstlistann svo það sé hægt að gera könnun eftirá!
Ertu á tölvupóstlistanum?
Að skrá sig á tölvupóstlistann er ekki lengur skilyrði fyrir að nota Flugeldahljod.com, en það væri gott að þú skráðir þig inn. Þá getur þú fengið senda tölvupósta með gagnlegum upplýsingum, tilkynningum til að minna þig á tímasetningar, og til að þú getir gefið svör eftirá um notkun þína á lausninni.
Smelltu hér til að skrá þig inn á tölvupóstlistann
Hér hleður þú niður klassísku lausninni fyrir smádýr (kanínur, naggrísi, hamstra, degu eða gerbil).
Leiðbeiningar fyrir klassísku lausninni eru undir.
Með því að nota þessa lausn samþykkir þú eftirfarandi skilmála (sjá neðst á síðunni):
Klassísk lausn – mappa zip pökkuð með MP3 skrám
Með því að hlaða niður skránum samþykkir þú skilyrði (disclaimer) varðandi öryggi og árangur sem má sjá neðst á síðunni.
…
Notar þú CD diskspilara? Skoðaðu neðar á síðunni (smella).
Sýnilegi hluti flugelda: Sjá líka neðar á síðunni.
…
Ertu með nettengt tæki?
Þú getur streymt hljóðunum beint af streymisveitunni Sound Cloud (smella).
Leiðbeiningar fyrir klassísku lausnina
Í örstuttu máli:
Spila á hljóðin daglega, en byrja mjög lágt og hækka smám saman milli daga, eins hratt og hægt er eftir því sem smádýrið þolir, þegar sést að hann er rólegur yfir hljóðinu á þeim styrk, þar til að lokum að hljóðin eru spiluð á sama styrk og ef sjálfur atburðurinn væri í gangi. Spila skal á mismunandi stöðum, á mismunandi tímum. Eigandinn á ekki að sýna nein viðbrögð, og það á að virðast eins og hljóðin komi fyrir tilviljun án þess að eigandinn hafi áhrif á. Rétt er að hafa sérstakan viðbúnað um áramót.
…
Byrja lágt, hækka smám saman
Vandinn við flugeldahljóð er m.a. að þau eru óþekkt, koma skyndilega og með miklum hávaða. Ef gæludýraeigandi spilar slík hljóð fyrir gæludýrið á fullum styrk, er gæludýrið í sömu stöðu og í “náttúrulegu” stöðunni, þ.e. hljóðin eru mjög hávær og gæludýrið getur fengið áfall og fyllst hræðslu.
Lausnin á því er að byrja að spila hljóðin mjög lágt og hækka svo smám saman, eins og gæludýrið þolir. Að lokum þekkir það hljóðið á fullum styrk og kippir sér ekki upp við það. Þessi aðferð kallast desensitization þegar unnið er með vandamál, eða habituation þegar verið er að fyrirbyggja vandamál. Hér eru skrefin. Kynntu þér vel þessi skref og farðu eftir þeim, þá er hámarks líkur á góðum árangri 🙂
- Hljóðin á að spila daglega þar til gæludýrið hefur vanist hljóðunum, og hræðist þá ekki hin raunverulegu hljóð, eða hræðist þau minna.* Lykil atriði sem verður að fylgja er að byrja á spilunina mjög lágt, og hækka svo hjóðhæðina í litlum skrefum eftir því sem gæludýrið þolir, þar til þau hafa náð fullum styrk. Ekki freistast til að byrja á að spila hljóðin af fullum styrk í upphafi, “til að prófa, bara smá, til að sjá hvort gæludýrið bregðist við”. Þetta getur leitt til áfalls fyrir dýrið. Hljómtæki sem eru notuð eiga, undir lok ferlisins, að skila hljóðunum sæmilega raunveralega í styrk og hljómgæðum. Fjórar mismunandi flugeldahljóðskrár fylgja þessari lausn og á að spila þær sitt á hvað fyrir fjölbreytni (lengd frá rúmum fimm til rúmlega átta mínútur), á mismunandi stöðum og jafnvel tímum.
- Spilaðu hljóðin mjög lágt. Skoðaðu viðbrögðin:
- Afslappað: Ef gæludýrið er alveg afslappað, hækkaðu hljóðið örlítið daginn eftir.
- Örlítið órólegt: Ef gæludýrið sýnir smá óróleika, þá ertu á góðum stað, alveg við mörkin að “pirrings” svæði þess. Haltu áfram nokkra daga þar til gæludýrið er orðið rólegt og hefur vanist hljóðunum. Hækkaðu svo hljóðið örlítið daginn eftir, og haltu þessu áfram koll af kolli.
- Mjög órólegt: Ef gæludýrið er mjög órólegt, hættu þá. Lækkaðu hljóðið daginn eftir og haltu áfram. Ef gæludýrið róast alls ekki og er sýnilega mjög æst og þjáð, talaðu þá við dýralækni. Það geta verið önnur heilsufarsleg vandamál fyrir hendi, sem þessi meðferð lagar ekki.
- Þegar þú hefur hækkað hljóðið aðeins, farðu þá eins að. Miðaðu við lið 2. 3. og 4. Svona hækkar þú hljóðstyrkinn smám saman, með eins eða fleiri daga millibili, þar til fullri hljóðhæð er náð, eins og verið sé að sprengja skotelda úti, nærri staðnum. Gerðu þetta eins hratt og mögulegt er, ekki dvelja við óbreytta hljóðhæð. Það er misjafnt hve langan tíma þetta tekur milli einstakra gæludýra. Ef þú átt fleiri en eitt gæludýr, þarftu að miða framganginn við það sem tekur hægast við sér og er viðkvæmast.
- Þú þarft að muna hvaða hljóðhæð var stillt á síðast, svo þú getir haldið áfram á sama styrk eða örlítið hærri. Ef allt í einu er spilað á of miklum styrk getur gæludýrið fengið áfall og hellst yfir það hræðslan sem einmitt er verið að reyna að vinna með eða fyrirbyggja, sem getur tekið talsverðan tíma að laga. Það er nauðsynlegt að spila hljóðin á öllum stöðum þar sem gæludýrið dvelur, inni í húsi, út, í bílnum, eða alla vega öllum stöðum þar sem búast má við að hann heyri flugeldarhljóð. Annars getur það vanist hljóðum á einum stað, en verið jafn hræddur við þau á öðrum stað, (e. locational tolerance). Gæludýrið má ekki átta sig á að þú setjir hljóðin af stað. Þau eiga að koma “fyrir tilviljun”. Ekki rjúfa hljóðin skyndilega, og alls ekki þannig að gæludýrið átti sig að þú sért að því. Passaðu upp á að önnur áreiti séu ekki í gangi sem trufla. Láttu alla vita hvað er að gerast, svo allir séu sáttir. Svona hljóð eru ekki alltaf skemmtileg, en þetta eru bara 5-9 mínútur í einu.
- Til að fylgjast með gæludýrinu er gott að skilja vel hræðslumerki smádýranna. Smelltu hér til að sjá lista yfir hræðslumerkin hjá smádýrunum. Ef þú sérð að gæludýrið tekur eftir þínum viðbrögðum, sýndu sjálf/ur engin viðbrögð, eins og hljóðin skipti alls engu máli, og ekki bregðast við með vorkunn eða hughreystandi viðbrögðum ef gæudýrið er órólegt. Með því sýnir þú að hljóðin skipta engu máli, enda eru hljóðin ekki hættuleg, og gæudýrið áttar sig á því að lokum. Ef þú talar í vorkunnartón við gæludýrið, ef þú sérð óöryggi, gæti það haldið að það sé raunveruleg ástæða til að vera hrætt, ef samband þitt við smádýrið er þannig að það sér og tekur mark á þínu atferli. Hvað hunda varðar, t.d. hafa sumir hundaeigendur spanað upp enn meiri hræðslu í hundinum sínum með slíku, og það getur hugsanlega átt við um fugla líka. Í staðinn áttu að lækka hljóðið og halda svo áfram frá þeim punkti.
- Þegar þú spilar hljóðin á hljóðstyrk sem er eins og raunverulega sé verið að skjóta upp flugeldum, og gæludýrið er orðinn vant og rólegt yfir hljóðunum, enda hefur þol þess verið byggt upp “mjúklega”, stig af stigi, má telja að gæludýrið sé útskrifað! Til hamingju!
- Þó er ekki hægt að tryggja að gæludýrið sé alveg sátt þegar raunverulegum flugeldum, skotkökum og slíku er skotið upp. Heyrn dýranna er oft næmari en okkar, og hávaðasamir hvellir geta verið mjög óþægilegir, plús lykt af brennandi púðri, og svo sýnilegi hluti flugeldanna (sjá undir). Ef þú ert ekki örugg/ur um að búið sé að venja gæludýrið á hljóðin, gæludýrið er órólegt, hafðu það þá inni yfir áramótin og búðu um það eins og mælt er með (sjá leiðbeiningar hér). Raunar skaltu hafa þessi ráð til reiðu, hvort sem þú telur gæludýrið tilbúið eða ekki. Síðari tíma viðhald: Gæludýr geta “af-vanist” hljóðunum. Því er nauðsynlegt að viðhalda þessu með því að spila hljóðin aftur, til dæmis nokkrum vikum fyrir flugeldatíma.
- Það segir ekkert um “gæði” gæludýrsins hve langan tíma þetta tekur, sem er mjög mismunandi (og margir eru ekki viðkvæmir fyrir þessu yfirleitt). Þetta er eins og að vera nærsýnn eða fjarsýnn, þú dæmir ekki manneskjuna eftir því. Það er því þarflaust að bera saman gæludýr og láta eins og einn sé betri en hinn.
Notar þú CD diskspilara?
Ef þú vilt spila af CD disk, eru tvær leiðir:
1 Þú getur brennt eigin CD disk, notandi tóman CD-R disk og MP3 skrárnar á þessari síðu.
2 Þú getur keypt CD disk á Amazon. Það er ekki mikið úrval en Victoria Stilwell er með fireworks disk. Athugaðu þó að 18,81 dollara diskur kostar hingað kominn um 5.200 krónur með sendingu, afgreiðslugjaldi og virðisaukaskatti.
Sýnilegi hluti flugeldanna. Geturðu þjálfað þann þátt?
Er hugsanlegt að gæludýrið sjái til flugelda um áramótin, en heyri ekki bara í þeim? Ef þú átt stórt (mjög stórt) sjónvarp eða skjávarpa til að varpa á vegg í myrku herbergi, eða utandyra í myrkri, geturðu spilað video, þar sem hann er tiltölulega nálægt. Það er hugsanlegt að gæludýrið læri á sjónræna þáttinn líka. Þú ferð svipað að og með hljóðin, þ.e. lætur skjáinn vera nokkuð langt frá í upphafi, og færir gæludýrið svo nær (eða skjáinn nær), þar til lætin á skjánum eru orðin þokkalega stór hluti sjónsviðsins. Flugeldahljod.com hefur áhuga á að heyra af hvernig slík tilraun tekst.
Smelltu hér til að sjá myndskeið frá áramótum, á Youtube.
Smelltu hér til að sjá myndskeið frá flugeldasýningu, á Youtube.
Hljóðrásin er góð í þessu myndskeiði. Smelltu á ferninginn niðri til hægri við skjáinn á Youtube, þá færðu allan skjáinn (full screen). Þú getur hlaðið niður myndskeiðinu með til þess gerðri þjónustu, til dæmis þessari.
Lagaleg skilyrði (disclaimer) varðandi öryggi og árangur
Með því að hlaða niður og nota hljóðskrárnar og leiðbeiningarnar samþykkir þú þessi skilyrði, og staðfestir að þú hefur kynnt þér vel efni þessara vefsíðna og ferð vandlega eftir leiðbeiningunum. Flugeldahljod.com getur ekki ábyrgst árangur af þessari aðferð. Flugeldahljod.com geta aðeins lofað að hafa lagt mikla vinnu í að gera þessar lausnir og leiðbeiningar vel úr garði, og að ef að hópur gæludýraeigenda nota þessar aðferðir þá á ástandið á gæludýrunum, heilt yfir séð, að verða mun betra í þessu tilliti en annars hefði verið. Hér er boðið upp á sérstaklega samsettar hljóðskrár og leiðbeiningar, en þar fyrir utan eru fjórir megin þættir sem Flugeldahljod.com getur ekki haft áhrif á:
- Gæludýr eru mismunandi að upplagi. Sum verða ekki hrædd við hljóð, önnur mjög hrædd. Sum ná frekar fljótt að venjast hljóðum, önnur taka lengri tíma, og örfá glíma við önnur heilsufarsleg, taugaleg, erfðafræðileg mál sem blandast í málið og gera að verkum að ekki er hægt að vinna með dýrið nema með aðkomu dýralæknis.
- Aðstæður eru mismunandi, og hljómtæki sem fólk á eru mismunandi.
- Eigendur eru mismunandi, með mismunandi nálgun að svona aðferð, og hafa mis mikinn tíma, en þessi aðferð krefst nokkurrar nákvæmni, sérstaklega klassíska aðferðin, en nýja aðferðin ætti að vera auðveldari og öruggari.
- Stundum koma upp óvænt tilvik sem enginn gat séð fyrir, en hafa áhrif á framvinduna.
Flugeldahljod.com getur ekki haft nein áhrif á þessa þætti. Lausnin á Flugeldahljod.com er © copyright 2015 allur réttur áskilinn, og er aðeins til einkanota. Notandi verður að sækja lausnina hingað og taka þátt í spurningakönnun, og má ekki áframselja lausnina.