Velkomin/n!

blanda-bara-blurundirÁ sumum heimilum eru ekki ein tegund af gæludýrum, heldur nokkrar tegundir.

Það er þekkt að flestar tegundir gæludýra geta verið mjög hrædd og liðið illa vegna flugeldahljóða kringum áramót. Afleiðingarnar geta stundum verið slæmar. Það er hægt að minnka verulega eða eyða alveg þessu vandamáli hjá mörgum gæludýrum, með því að venja þau á hljóðin, og gera hljóðin þar með hversdagsleg og ekki ógnandi. Tegundirnar sem leiðbeiningar eru fyrir hér á einum stað eru: Hundar, kettir, fuglar, smádýr (kanínur, naggrísir, hamstrar, degu og gerbil).

Það er einstaklingsbundið milli gæludýra hvaða tíma þetta tekur, og hversu langt má ná, og því er best að byrja strax!

Bein leið! Nú þarf ekki að skrá sig á póstlista.

Með því að nota lausnina hér á Flugeldahljóð.com samþykkir þú eftirfarandi skilmála (sjá neðst á síðunni):

Forupplýsingar og tvö myndskeið

Hér undir eru myndskeið og upplýsingar sem skýra hræðslu við hljóð, og aðferðir til að vinna á eða fyrirbyggja vandann.

Myndskeið:

Af hverju hræðsla við hljóð?

Ráð gegn óþarfa hræðslu við hljóð hjá gæludýrum

Ertu á tölvupóstlistanum?

Að skrá sig á tölvupóstlistann er ekki lengur skilyrði fyrir að nota Flugeldahljod.com, en það væri gott að þú skráðir þig inn. Þá getur þú fengið senda tölvupósta með gagnlegum upplýsingum, tilkynningum til að minna þig á tímasetningar, og til að þú getir gefið svör eftirá um notkun þína á lausninni.

Smelltu hér til að skrá þig inn á tölvupóstlistann

Smella hér.

Lausn fyrir blandaðar tegundir

Það er óvenjulegt að ræða þetta í samhengi við blandaðar tegundir gæludýra á einu heimili, enda hafa sérstakar lausnir fyrir þannig samsetningu ekki verið til á markaðnum. Þetta er fyrsta lausnin í sögunni fyrir blandaðan hóp gæludýra. Myndirnar “Af hverju fyrir allar tegundir” og “manifesto” neðst á síðunni skýra hvers vegna lausnin er búin til.

Ókeypis aðgangur að þróuðum lausnum

Til þess að venja dýrin flugeldahljóð, og önnur hljóð, verður að beita réttum aðferðum. Þessar aðferðir nefnast desensitization og habituation á ensku hjá fagfólki.

Hér á þessari síðu færðu aðgang að hljóðum til að spila, sem eru niðurhalanlegar MP3 skrár, og réttum leiðbeiningum. Þetta er án endurgjalds, en verðmæti er annars um 1500-2000 krónur. Ef þú þarft CD disk eru leiðbeiningar um það þegar inn er komið. Þessi síða tengist vöruþróun þar sem nýjar lausnir eru þróaðar.

Hvaða hluti gæludýra á í erfiðleikum með flugeldahljóð og önnur hljóð?

Stutta og laggóða svarið er: “Mjög mörg!”, þar til búið er að venja þá á hljóðið.

Það fer dálítið eftir tegund. Hundar eru vel þekkt stærð. Um 20% af hundum eiga við verulegan vanda að glíma einhvern tímann á ævinni, og hærra hlutfall af vinnu- og fjárhundakynjum, jafnvel yfir 40%. Það verður að viðurkennast að tölulegar upplýsingar eru mjög litlar um aðrar tegundir; ketti sem eru rándýr í náttúrunni, og svo gæludýrin sem eru plöntuætur og náttúrleg bráð eða “prey animals”, þ.e. búrfugla og smádýr (kanínur, hamstrar, naggrísir, og exótísk gæludýr eins og degu og gerbil). Grunn reglan með flest dýr er að þau eru tortryggin og flýja sjálfkrafa allt sem þau þekkja ekki. Það væri hins vegar lítill tími til að matast ef alltaf væri verið að flýja. Hestar sem eru plöntuætur og veiðibráð eru forritaðir til að vera strax hræddir við allt, en mjög fljótir að venjast á hljóð þegar þeir átta sig á að engin hætta er á ferðinni. En hestar eru stórir svo kannski eru þeir rólegri en smádýrin. Smádýr sem verða ofsahrædd fá stundum áfall og deyja á staðnum.

Mun þetta hjálpa þínum gæludýrum?

Það er nokkuð ljóst að þessar aðferðir hér á flugeldahljod.com munu geta hjálpað mörgum dýrum að verulegu leiti. Hvernig gengur með þín gæludýr, sem lest þetta, er erfiðara að segja, enda eru þau líklega misjafnlega viðkvæm milli einstaklinga, og aðstæður eiganda eru misjafnar. Þó er almennt frekar einfalt að spila hljóð fyrir smádýr og fugla til að láta þau venjast þeim, því að flestir eru þau í búri eða litlu húsi (aviary). Það getur verið aðeins meira mál fyrir hunda og ketti sem eru bæði innan og utan dyra. Það er mjög þess virði að reyna, áður en hinir skelfilegu flugeldar fara að hljóma.

Af hverju allar tegundir gæludýra?

af-hverju-allar-tegundir

 

manifesto-islenska

Lagaleg skilyrði (disclaimer) varðandi öryggi og árangur

Með því að hlaða niður og nota hljóðskrárnar og leiðbeiningarnar samþykkir þú þessi skilyrði, og staðfestir að þú hefur kynnt þér vel efni þessara vefsíðna og ferð vandlega eftir leiðbeiningunum. Flugeldahljod.com getur ekki ábyrgst árangur af þessari aðferð. Flugeldahljod.com geta aðeins lofað að hafa lagt mikla vinnu í að gera þessar lausnir og leiðbeiningar vel úr garði, og að ef að hópur gæludýraeigenda nota þessar aðferðir þá á ástandið á gæludýrunum, heilt yfir séð, að verða mun betra í þessu tilliti en annars hefði verið. Hér er boðið upp á sérstaklega samsettar hljóðskrár og leiðbeiningar, en þar fyrir utan eru fjórir megin þættir sem Flugeldahljod.com getur ekki haft áhrif á:

  1. Gæludýr eru mismunandi að upplagi. Sum verða ekki hrædd við hljóð, önnur mjög hrædd. Sum ná frekar fljótt að venjast hljóðum, önnur taka lengri tíma, og örfá glíma við önnur heilsufarsleg, taugaleg, erfðafræðileg mál sem blandast í málið og gera að verkum að ekki er hægt að vinna með dýrið nema með aðkomu dýralæknis.
  2. Aðstæður eru mismunandi, og hljómtæki sem fólk á eru mismunandi.
  3. Eigendur eru mismunandi, með mismunandi nálgun að svona aðferð, og hafa mis mikinn tíma, en þessi aðferð krefst nokkurrar nákvæmni, sérstaklega klassíska aðferðin, en nýja aðferðin ætti að vera auðveldari og öruggari.
  4. Stundum koma upp óvænt tilvik sem enginn gat séð fyrir, en hafa áhrif á framvinduna.

Flugeldahljod.com getur ekki haft nein áhrif á þessa þætti. Lausnin á Flugeldahljod.com er © copyright 2015 allur réttur áskilinn, og er aðeins til einkanota. Notandi verður að sækja lausnina hingað og taka þátt í spurningakönnun, og má ekki áframselja lausnina.


show ip address