Velkomin/n!
Það er þekkt að smádýr sem eru gæludýr (t.d. kanínur, hamstrar, naggrísir, og exótísk gæludýr eins og degu og gerbil) geta verið mjög hrædd og liðið illa vegna flugeldahljóða kringum áramót, ekki síður en t.d. hundar, hestar og kettir. Afleiðingarnar geta verið slæmar. Það er hægt að minnka verulega eða eyða vandanum með því að venja þau á hljóðin. Þá verða hljóðin hversdagsleg og síður ógnandi.
Að venja gæludýr við þessi hljóð getur tekið nokkurn tíma (einstaklingsbundið milli dýra) og því er ráðlegast að byrja strax!
Bein leið! Nú þarf ekki að skrá sig á póstlista.
Með því að nota lausnina hér á Flugeldahljóð.com samþykkir þú eftirfarandi skilmála (sjá neðst á síðunni):
Forupplýsingar og tvö myndskeið
Hér undir eru myndskeið og upplýsingar sem skýra hræðslu við hljóð, og aðferðir til að vinna á eða fyrirbyggja vandann.
Myndskeið:
Af hverju hræðsla við hljóð?
…
Ráð gegn óþarfa hræðslu við hljóð hjá gæludýrum
…
Ertu á tölvupóstlistanum?
Að skrá sig á tölvupóstlistann er ekki lengur skilyrði fyrir að nota Flugeldahljod.com, en það væri gott að þú skráðir þig inn. Þá getur þú fengið senda tölvupósta með gagnlegum upplýsingum, tilkynningum til að minna þig á tímasetningar, og til að þú getir gefið svör eftirá um notkun þína á lausninni.
Smelltu hér til að skrá þig inn á tölvupóstlistann
Lausn fyrir smádýr
Það er óvenjulegt að ræða þetta í samhengi við þessi smádýr, enda hafa sérstakar lausnir fyrir þann flokk gæludýra ekki verið til á markaðnum. Þetta er fyrsta lausnin í sögunni til að venja smádýr við flugeldahljóð. Myndirnar “Af hverju fyrir allar tegundir” og “manifesto” neðst á síðunni skýra hvers vegna lausnin er búin til.
Ókeypis aðgangur að þróuðum lausnum
Til þess að venja smádýrið flugeldahljóð, og önnur hljóð, verður að beita réttum aðferðum. Þessar aðferðir nefnast desensitization og habituation á ensku hjá fagfólki.
Hér á þessari síðu færðu aðgang að hljóðum til að spila, sem eru niðurhalanlegar MP3 skrár, og réttum leiðbeiningum. Þetta er án endurgjalds, en verðmæti er annars um 1500-2000 krónur. Ef þú þarft CD disk eru leiðbeiningar um það þegar inn er komið. Þessi síða tengist vöruþróun þar sem nýjar lausnir eru þróaðar. Þú tekur þátt í frumkvöðlastarfi hér.
Hvaða hluti smádýra á í erfiðleikum með flugeldahljóð og önnur hljóð?
Stutta og laggóða svarið er: “Öll!”, þar til búið er að venja þá á hljóðið.
Þau smádýr sem eru algengust sem gæludýr (kanínur, hamstrar, naggrísir, og exótísk gæludýr eins og degu og gerbil) eru plöntuætur, og náttúruleg bráð eða “prey animal” á ensku. Tegundin þarf að vera stöðugt á varðbergi í náttúrunni, til að sleppa undan rándýrum. Grunn reglan með smádýrin og aðra náttúrulega bráð er að flýja sjálfkrafa allt sem þau þekkja ekki. Það væri hins vegar lítill tími til að matast ef alltaf væri verið að flýja. Ekki eru til miklar upplýsingar um dýrin að þessu leiti, en líklega eru þau almennt fljót að venjast á hljóð þegar þau átta sig á að ekkert hættulegt. Þannig er það alla vega með hesta, sem eru plöntuætur og náttúruleg bráð einni. En hestar eru stórir svo kannski eru þeir rólegri en smádýrin. Smádýr sem verða ofsahrædd fá stundum áfall og deyja á staðnum.
Mun þetta hjálpa þínu smádýri?
Það er nokkuð ljóst að þessar aðferðir hér á flugeldahljod.com munu geta hjálpað mörgum smádýrum að verulegu leiti. Hvernig gengur með þitt eða þín smádýr, sem lest þetta, er erfiðara að segja, enda eru þau líklega misjafnlega viðkvæm milli einstaklinga, og aðstæður eiganda eru misjafnar. Þó er almennt frekar einfalt að spila hljóð fyrir smádýr til að láta þá venjast þeim, því að flestir eru þau í búri eða litlu húsi (aviary). Það er annað með hunda og hesta sem eru bæði innan og utan dyra. Það er því mjög þess virði að reyna, áður en hinir skelfilegu flugeldar fara að hljóma.
Af hverju allar tegundir gæludýra, líka smádýrin?
Lagaleg skilyrði (disclaimer) varðandi öryggi og árangur
Með því að hlaða niður og nota hljóðskrárnar og leiðbeiningarnar samþykkir þú þessi skilyrði, og staðfestir að þú hefur kynnt þér vel efni þessara vefsíðna og ferð vandlega eftir leiðbeiningunum. Flugeldahljod.com getur ekki ábyrgst árangur af þessari aðferð. Flugeldahljod.com geta aðeins lofað að hafa lagt mikla vinnu í að gera þessar lausnir og leiðbeiningar vel úr garði, og að ef að hópur gæludýraeigenda nota þessar aðferðir þá á ástandið á gæludýrunum, heilt yfir séð, að verða mun betra í þessu tilliti en annars hefði verið. Hér er boðið upp á sérstaklega samsettar hljóðskrár og leiðbeiningar, en þar fyrir utan eru fjórir megin þættir sem Flugeldahljod.com getur ekki haft áhrif á:
- Gæludýr eru mismunandi að upplagi. Sum verða ekki hrædd við hljóð, önnur mjög hrædd. Sum ná frekar fljótt að venjast hljóðum, önnur taka lengri tíma, og örfá glíma við önnur heilsufarsleg, taugaleg, erfðafræðileg mál sem blandast í málið og gera að verkum að ekki er hægt að vinna með dýrið nema með aðkomu dýralæknis.
- Aðstæður eru mismunandi, og hljómtæki sem fólk á eru mismunandi.
- Eigendur eru mismunandi, með mismunandi nálgun að svona aðferð, og hafa mis mikinn tíma, en þessi aðferð krefst nokkurrar nákvæmni, sérstaklega klassíska aðferðin, en nýja aðferðin ætti að vera auðveldari og öruggari.
- Stundum koma upp óvænt tilvik sem enginn gat séð fyrir, en hafa áhrif á framvinduna.
Flugeldahljod.com getur ekki haft nein áhrif á þessa þætti. Lausnin á Flugeldahljod.com er © copyright 2015 allur réttur áskilinn, og er aðeins til einkanota. Notandi verður að sækja lausnina hingað og taka þátt í spurningakönnun, og má ekki áframselja lausnina.